Róleg vika að baki, ein krazy tekin við
Jæja, það hlaut að koma að því að maður ætti eina rólega viku. Samt skrítið hvað hún leið hratt. Það gerðist svo sem ekkert merkilegt. Skrapp reyndar í bíó með henni Heiðu minni að sjá 27 Dresses, annars var þetta bara same old same old. Skólinn, ræktin og vinna. Reyndi verð ég að viðurkenna að ég var ekki nógu duglegur að mæta í skólann. Svaf yfir mig alla dagana. Svona er þetta bara, ekkert við þessu að gera. En ég ætla ekki vera eins lélegur þessa viku.
Annars verður krazy að gera í þessari viku. Erfitt próf á miðvikudaginn, ég og Steindór þurfum að búa til eitt stykki rafmótor. Lyklasmíðin heldur áfram og minn hópur þarf að byrja upp á nýtt, en það verður bara að hafa það. Mæta í ræktina. Og svo mál málanna. Árshátíð Pragma. Mikið rosalega verður gaman. Enda hlakka ég mikið til. Svo stendur til að kíkja út á lífið á föstudagskvöldið. Nóg að gera.
Ræktin og matarræðið.
Það gleður mig að segja að ekki einu sinni hef ég skrópað í ræktinni. NOT ONCE. Eins með matarræðið. Ef það kemur einhver freisting að þá bæli ég hana niður með vatni og banana. En það sem hjálpar rosalega núna er það, að ég er að horfa á þetta með langtíma markmiði. Ég er ekki orðinn stressaður að sjá ekki magavöðvana skína í gegn (enda bara 5 vikur liðnar) enda verður maður að vera raunsærí þessum efnum. Þetta kemur allt með kalda vatninu.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili þar sem ég var svo langa færslu seinast.
Verið bara dugleg að kommenta, ég er ekki sáttur hvað það voru fáir sem kommentuðu á seinustu færslu. Og könnunin, ég ætla láta þessa vera eina viku í viðbót. Kjósið.
Skrapp frá tíu mínútur, kem eftir korter.
