Prófíll

  • Nafn: Brynjólfur Guðmundsson
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Nemi, er einnig lærður húsgagnasmiður
  • Hjúskaparstaða: trúlofaður
  • Um mig: Er hress gaur sem elskar súkkulaði ís.
  • Annað: Góður vinur er sá sem hjálpar manni að strjúka úr fangelsi, en sannur vinur er sá sem situr við hliðina á þér í klefanum og segir "djöfull var gaman í gær".

Auglýsing

Undirsíðukubbur

Könnun

Ertu komin(n) í jólaskapið?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Frábær vika að baki og enn betri tekin við

18. febrúar 2008 klukkan 23:10

Vá hvað seinasta vika var algjör snilld. Maður er farinn að finna árangur í ræktinni og hef ekki svindlað einu sinni í matarræðinu. Kallinn er bara farinn að þyngja lóðin og auka level-ið á hlaupabrettinu.

 

En það er ekki það eina. Vegna mikilla anna í skólanum upp á síðkastið var ákveðið að halda smá bekkjarpartý til að væta kverkarnar. Partýið var haldið heima hjá Arnóri síðast liðið föstudagskvöld. Það var ótrúlega góð mæting og stemmningin góð. Ekki einungis mættu okkar bekkjarfélagar, heldur fengum við gesti úr öðrum bekkjum og líka nágranna Arnórs. Bara snilld.

 

Eftir gott djamm heima hjá Arnóri lá leiðin niður í 101 Reykjavík. Það sem var alveg frábært var að engin þurfti að taka taxa niður í bæ, heldur var Solla edrú og á sparibílnum sínum þannig hún gat tekið nokkra með sér í bíl. Svo var Maríanna svo sæt í sér að koma og sækja nokkra pissfulla karlmenn og skutla þeim downtown(takk fyrir það). Tobbi kallinn var einnig edrú aldrei þessu vant (it´s true) og keyrði hann restina af pakkinu (mér og Arnóri) á djammið. Flestir úr partýinu hittust á Hverfis og tjúttuðu þar fram eftir öllu.

 

Svo kom elskan mín þegar líða tók á kvöldið og keyrði kallinn sinn heim. Hún er svo góð við mig þessi elska.

 

Laugardagurinn var í rólegri kantinum, bara lært aðeins yfir daginn. Seinna um kvöldið fórum við svo Heiða til Fanný og JK Fús að horfa á Hostel 1 og 2. Þær eru alveg ágætar, samt engar Óskarsverðlauna myndir.

 

Á sunnudagskvöldið kíkti ég í bíó á Jumper. Myndin var ekkert sérstök og ekki hjálpaði til að bíó-ið var fullt af einhverjum gelgjum sem samkjöftuðu nánast alla myndina. Helvítis krakka vitleysingar.

 

Annars er ekki mikið meira að frétta en endilega kíkið á matardagbókina og ekki gleyma að kommenta.

 

Takk fyrir sælar...

Brynjólfur Guðmundsson
Geirlaug
 
Hef ég sagt þér að þú ert snillingur " takk fyrir sælar...." heheheh getur drepið mann:)
En djöfull líst mér vel á það hvað þú ert duglegur, haltu svona áfram:)
19. febrúar 2008 klukkan 17:44
þakka þér fyrir það, og já. ég skal halda áfram að vera duglegur, ég er allavega að reyna það á hverjum degi.
19. febrúar 2008 klukkan 17:55
Það er aldeilis dugnaður í þér maður. Hlakka til að sjá þig á laugardaginn og meta árangurinn :)
19. febrúar 2008 klukkan 22:29
Ég hlakka til að koma :)
19. febrúar 2008 klukkan 22:35
Jibbí......það verður svo gaman:)
21. febrúar 2008 klukkan 11:50
Það verður geðveikt stuð. Eða eins og einn ónefndur listamaður sagði "Stuð að eilífu yeah!!!"
21. febrúar 2008 klukkan 22:35
Líst vel á að þú birtir átakið þitt opinberlega. Miklu meiri líkur á að það gangi vel;)

kv. Anna
25. febrúar 2008 klukkan 09:23
Hildur Sig
 
Hva á ekkert að halda áfram ???????
Koma svo taktu nú vel á því

Kv Hildur
27. febrúar 2008 klukkan 08:38
þið voruð svo skrautlegir að það var engu lagi líkt.

En hver var þetta sem var að bíta allt og alla??!
29. febrúar 2008 klukkan 10:52

Skrifa athugasemd