Prófíll

  • Nafn: Brynjólfur Guðmundsson
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Nemi, er einnig lærður húsgagnasmiður
  • Hjúskaparstaða: trúlofaður
  • Um mig: Er hress gaur sem elskar súkkulaði ís.
  • Annað: Góður vinur er sá sem hjálpar manni að strjúka úr fangelsi, en sannur vinur er sá sem situr við hliðina á þér í klefanum og segir "djöfull var gaman í gær".

Auglýsing

Undirsíðukubbur

Könnun

Ertu komin(n) í jólaskapið?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Frábær tengdamamma sem framleiddi ástina í lífi mínu

04. febrúar 2008 klukkan 23:58

Allavega, fyrsta vikan liðin og ég stóð mig bara þokkalega þakka þér fyrir. Þótt að ég hafi hlakkað til að byrja átakið kveið mér samt soldið fyrir að hætta í gosinu og namminu á virkum dögum en það var eins auðvelt og að drekka vatn. Þótt margir hafa veifað súkkulaði stykkjunum sínum framan í mig og verið rosalega nálægt mér þegar þeir fengu sér gos að þá hafði það engin áhrif á mig.

 

Ég verð að játa að það var rosalega gaman að mæta aftur í ræktina til að siða lóðin aðeins til. Steini mágur hefur verið að mæta með mér sem hefur bara verið snilld enda höfum við verið að peppa hvorn annan upp. Það er bara brillíjant að pumpa aðeins og fara svo í gufuna. Mæli með þessu.

 

Svo er kallinn bara orðinn bankastarfsmaður hjá Glitni. Fínt að getað unnið smá með skólanum og fengið smá aur fyrir taxanum heim eftir vísindaferðinar og þynnkumatnum daginn eftir.

 

Svo minni ég bara enn og aftur á að skoða hliðardálkana, sjá hvernig ég er að gera hlutina.

 

Munið svo bara tvennt, brosið út í heiminn og grátið í koddann ykkar.

Brynjólfur Guðmundsson
Heiða
 
Já Binni minn, þú stóðst þig eins og hetja í að láta nammið og gosið eiga sig :) er stolt af þér :*
05. febrúar 2008 klukkan 10:00
Blessaður Binni, líst vel á þig að byrja í svona átaki! Ég ætti kannski að gera það líka.. ég bara fitna og fitna.. :o)
Annars segi ég bara velkominn í hópinn, við erum semsagt orðnir samstarfsmenn! Hvað ertu að gera sniðugt hjá Glitni? Kannski að ég leiti þig uppi á innranetinu... :)
05. febrúar 2008 klukkan 10:20
Tinna Björk
 
glæsilegt hjá þér Binni!!! you rock... ;)
06. febrúar 2008 klukkan 17:19
Sæl Heiða Rut. Þú hefur leyfði til að bæta aðeins á þig, fer ekki alveg að styttast í fæðingu? En já Glitnir, ég vinn í símasöuveri á Lækjargötunni. Endilega tékkaðu á mér á innranetinu.

Og takk Tinna Björk, og já, ég rokka og það feitt :)
06. febrúar 2008 klukkan 22:50
Hey gaur:)
Þykir vænt um þig, farðu vel með þig dúllan mín:)

Kv. Tinna

P.S. Þú stendur þig ROSALEGA VEL:)
06. febrúar 2008 klukkan 22:54
Frábært....að það gengur vel að halda sig frá namminu! Það er eitthvað sem ég ætti mjög erfitt með að gera!! Þú ert ekkert smá duglegur!! keep up the good work :)
07. febrúar 2008 klukkan 13:12
Takk fyrir það Tinna og mér þykir vænt um þig líka.

Sigga mín, það er ekkert mál að halda sig frá namminu, maður þarf bara að byrja á því. Ef þú getur ekki hægt bara í eitt skiptin fyrir öll, þá á maður bara að hætta hægt og rólega, leyfa sér eitt nammi, á hverjum degi í viku, svo eitt nammi á dag, annan hvern dag í eina viku og svo framvegis ;) ef ég get gert þetta, þá getur þú gert þetta.
07. febrúar 2008 klukkan 13:54
Áslaug
 
Ohhh Binni minn þú ert svo duglegur....ættli næsta skref verði ekki bara að draga þig með mér í Boot camp;) Luv jú
07. febrúar 2008 klukkan 16:15
Flott hjá þér Binni. Ég er líka hætt í namminu og gengur það mjög vel, en það er mjög freistandi að svindla þegar maður býr með nammigrís :)
Bið að heilsa Heiðu :)
Kveðja Sandra Dögg
07. febrúar 2008 klukkan 22:49
Já Sandra....Helgi er náttúrulega ROSALEGUR þannig að ég myndi segja að þú værir að standa þig frábærlega með að borða ekki nammi þegar hinn eini sanni nammigrís býr undir sama þaki;)
08. febrúar 2008 klukkan 00:20
Sorry Áslaug en mig langar ekki í bootcamp. En takk samt fyrir að vilja hafa mig :)

Frábært að heyra Dögg að ég er ekki einn, og veistu hvað þetta er ekkert mál, þó svo að maður búi með nammi grís. Um daginn fékk heiða sér snakk og kók yfir tv-inu og ég fékk mér bara vínber. ummmmm...... Keep up the good work
08. febrúar 2008 klukkan 19:03
já...vá en varstu samt ekki pínu abbó út í Heiðu með allt góða snakkið og nammið :P Ég gæti kannski alveg hætt þessu, Hrafn væri allavega ekki mikið að freista mín, hann er frekar á móti svona sukki heldur en með því. Reyndar erum við hjónin algjörir poppfíklar, það væri erfiðara að hætta í poppinu og gosinu þar sem það er sko alltaf keypt og í boði!!!!!
08. febrúar 2008 klukkan 20:14
Einhversstaðar heyrði ég "að allt væri hægt ef viljinn er fyrir hendi". Í augnablikinu er hann fyrir hendi og þá er þetta ekkert mál, og þegar Heiða fékk sér snakkið að þá bara "hunsaði" ég það. Ef þannig má að orðum komast. ;)

Svo er það líka þannig, þótt að einhver annar fái sér eitthvað óhollt, þýðir ekki að við þurfum að gera það líka :)
09. febrúar 2008 klukkan 02:08
Heiða
 
hva?? er bara verið að klaga kjelluna?? það er aldeilis maður má ekki fá sér smá snakk og þá er því bara póstað á netið hehehehe
09. febrúar 2008 klukkan 09:41
Mmmm.....ekki gleyma beikon snakkinu Sigga, það er eitthvað sem gæti sko aldrei hætt að borða (nema að Binni myndi ætla því yfir mig, svona eins og hann gerði með hangikjötið hér forðum) ;)
10. febrúar 2008 klukkan 01:25
Ætla = æla Tinna mín, og ég ældi því ekki yfir þig, þú varst bara vitni af því.
10. febrúar 2008 klukkan 12:39
Hehe já meinti æla;)

EINMITT Binni minn, hafðu þetta bara eins og þú vilt.....
11. febrúar 2008 klukkan 01:44

Skrifa athugasemd