Prófíll

  • Nafn: Brynjólfur Guðmundsson
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Nemi, er einnig lærður húsgagnasmiður
  • Hjúskaparstaða: trúlofaður
  • Um mig: Er hress gaur sem elskar súkkulaði ís.
  • Annað: Góður vinur er sá sem hjálpar manni að strjúka úr fangelsi, en sannur vinur er sá sem situr við hliðina á þér í klefanum og segir "djöfull var gaman í gær".

Auglýsing

Undirsíðukubbur

Könnun

Ertu komin(n) í jólaskapið?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Að 12 viknum loknum...

01. desember 2008 klukkan 13:54
... hef ég lést um 12.5kg. Það gerir rúmt kíló á viku og ég get ekki verið annað en sáttur. Sannleikurinn er sá að ég er búinn að æfa núna í 13 vikur og var að byrja þá fjórtándu. Ég setti mér það markmið að komast niður fyrir 90kg fyrir 24.des. Það gera samanlagt 6kg á 4 vikum. Ég held að það sé alveg raunhæft enda ætla ég að æfa 2x á dag sex daga vikunnar.

Ég er ennþá ekki búinn að svindla á matarræðinu Bara einn nammidagur í viku og svo ekki meir.

Annars er ekkert mikið að frétta. Búinn að sjá nýju Bond og ég er að fíla þessa nýju nálgun á Bond-aranum.

Svo átti hún Heiða mín afmæli þann 15.nóv og við fengum nokkra vini í heimsókn sem var bara gaman.

Annars er ég ekki sáttur með niðurstöðuna úr könnuninni. Myndin mín (Rocky) fékk bara eitt atkvæði og það kom frá mér.

Svo er maður kominn með Facespace. Fléttu upp Brynjólfur Guðmundsson og add-aðu mér inn.

Ég held að þetta sé bara komið í bili og ég lofa einni færslu fyrir jól.

Þangað til, hafið það gott og takið þátt í nýju könnuninni.

Binni kveður
Brynjólfur Guðmundsson
3 athugasemdir

Jess Jess Jess Jess Jess!!!

08. nóvember 2008 klukkan 20:05
Loksins fór ekki aðeins 10kg-ið burt, heldur náði ég líka 11kg-inu burt í liðinni viku. Það er rétt. Ég er búinn að léttast um slétt 11kg á 10 vikum. Djöfull er ég sáttur. En, eins og ég er alltaf að segja. Það er ennþá nóg eftir.

En nóg um það í bili.

Annars er nóg meira að frétta frá því seinast.

Ég var að ljúka ásamt honum Hrafni mínum próf fyrir byssuleyfi og veiðikortaleyfi. Það sem það er komin kreppa að þá verður maður bara að gera eins og forfeður okkar gerðu og veiða sér til matar.

Svo erum við kallanir búnir að sækja um vinnu á olíuborpöllum í Noregi og Svíþjóð. Maður verður kannski íslenskur pólverji á ballarhafi nær Noregi eða Svíþjóð.

En þetta eru þær fréttir sem ég hef að færa í bili.

Svo er líka komin ný könnun. Allar að taka þátt í henni.

Tölum saman seinna.

Binni out.
Brynjólfur Guðmundsson
5 athugasemdir

Kominn niður í tveggja stafa tölu!

20. október 2008 klukkan 19:45
Jæja gott fólk. Loksins loksins er maður kominn niður í tveggja stafa töluna. Kominn úr 108kg niður í 99.4kg á sjö vikum. Semsagt, búinn að léttast um 8.6kg. Húrra fyrir mér. En ég er ekki búinn, það er nóg eftir.

Annars er ekki neitt rosalegt að frétta. Bara same shit, different day.

Tinna hélt reyndar upp á afmælið um daginn og það var svaka fjör, tjúttuðum fram á nótt.

Svo kíktum við Hrafn í bíó seinasta föstudag og sáum Max Payne. Fínasta mynd, svona týpisk stráka mynd. Lögga að leita morðingja konu sinnar.

Jæja gott fólk. Þetta verður ekki lengra í bili. Læt ykkur vita hvernig gengur í ræktinni.

Later dudes.
Brynjólfur Guðmundsson
8 athugasemdir

Langt síðan seinast

21. september 2008 klukkan 00:26
Jæja gott fólk. Það er komið svolítið langt síðan að ég bloggaði seinast. Mætti eiginlega segja að ég sé með verri bloggurum sem til eru. En það þarf einhver að vera það líka. Ég get ekki verið bestur í öllu.

Annars er ekki mikið að frétta. Maður er bara að vinna alla daga og lyfta og þess háttar. Átti reyndar fínt sumar, eins og flest allir. Enda fengum við frábært veður og ekki hægt að kvarta undan því aldrei þessu vant.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, en ég ætla reyna að vera duglegri að láta ljós mitt skína á blogginu aftur.

Bless og ekkert stress
Brynjólfur Guðmundsson
2 athugasemdir

Ég er ekki hættur

12. apríl 2008 klukkan 09:07
Gott fólk. Ég vildi bara láta ykkur vita að ég er ekki hættur að blogga, en vegna mikilla veikinda og lærdóms hef ég ekki komist í það. Ég mun henda inn nýrri færslu fljótlega eftir lokaprófin.
Brynjólfur Guðmundsson
3 athugasemdir

Róleg vika að baki, ein krazy tekin við

03. mars 2008 klukkan 23:45

Jæja, það hlaut að koma að því að maður ætti eina rólega viku. Samt skrítið hvað hún leið hratt. Það gerðist svo sem ekkert merkilegt. Skrapp reyndar í bíó með henni Heiðu minni að sjá 27 Dresses, annars var þetta bara same old same old. Skólinn, ræktin og vinna. Reyndi verð ég að viðurkenna að ég var ekki nógu duglegur að mæta í skólann. Svaf yfir mig alla dagana. Svona er þetta bara, ekkert við þessu að gera. En ég ætla ekki vera eins lélegur þessa viku.

 

Annars verður krazy að gera í þessari viku. Erfitt próf á miðvikudaginn, ég og Steindór þurfum að búa til eitt stykki rafmótor. Lyklasmíðin heldur áfram og minn hópur þarf að byrja upp á nýtt, en það verður bara að hafa það. Mæta í ræktina. Og svo mál málanna. Árshátíð Pragma. Mikið rosalega verður gaman. Enda hlakka ég mikið til. Svo stendur til að kíkja út á lífið á föstudagskvöldið. Nóg að gera.

 

Ræktin og matarræðið.

Það gleður mig að segja að ekki einu sinni hef ég skrópað í ræktinni. NOT ONCE. Eins með matarræðið. Ef það kemur einhver freisting að þá bæli ég hana niður með vatni og banana. En það sem hjálpar rosalega núna er það, að ég er að horfa á þetta með langtíma markmiði. Ég er ekki orðinn stressaður að sjá ekki magavöðvana skína í gegn (enda bara 5 vikur liðnar) enda verður maður að vera raunsærí þessum efnum. Þetta kemur allt með kalda vatninu.

 

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili þar sem ég var svo langa færslu seinast.

 

Verið bara dugleg að kommenta, ég er ekki sáttur hvað það voru fáir sem kommentuðu á seinustu færslu. Og könnunin, ég ætla láta þessa vera eina viku í viðbót. Kjósið.

 

Skrapp frá tíu mínútur, kem eftir korter.

Brynjólfur Guðmundsson
8 athugasemdir

Ný könnun og lengsta færslan hingað til

27. febrúar 2008 klukkan 11:52

Þá eru fyrstu fjórar vikurnar í átakinu liðnar og nýtt prógramm tekur við. Þetta prógramm veður algjör killer sem mun standa yfir næstu fimm vikurnar. Skoðið meira um það undir “ræktin” í hliðardálkunum. Einnig er að finna matarræðið seinust viku sem ég verð að viðurkenna að það var ekki upp á marga fiska, ekki það að ég hafi verið að svindla heldur var ég alltof latur við að borða. En nóg það, allt um þetta að sjá undir “matarræðið”.


Mál málanna. Vikan sem var að líða. Hún var alveg rosalega. Það var ekkert grín þegar ég sagði að enn betri vika væri tekin við, þessi var einfaldlega betri. Fyrir utan líkamlegu breytinguna að þá er sú andlega orðin töluvert betri. Kallinn er bara alltaf hress.


Það helsta úr seinustu viku er djammið á föstudaginn var. Ég segi bara eins og Ólafur í Næturvaktinni “eigum við að ræða það eitthvað”. Ég og bekkjarbróðir minn og samstarfsfélagi hann Steindór byrjuðum á því að skella okkur í vísindaferð hjá Icebank kl 17. Eftir góða kynningu þar og mikla drykkju var klukkan orðin 19 og við kíktum á Broadway þar sem afmælishátíð Pragma var haldið. En við stoppuðum þar stutt. Um kl 19:40 lögðum við land undir fót og gengum yfir á Kringlukránna þar sem Uppskeruhátíð símasöluvers Glitnis var haldi. Við vorum komnir þangað kl 20 og viti menn. Það var opinn bar. Boy oh boy, það var drukkið. Eftir verðlaunaafhendinguna var bara drukkið og spjallað fram eftir kvöldi. Leiðin lá svo næst kl 00 niður í downtown Reykjavík. Þar var kíkt á Vegamót, Ölstofuna, Apótekið, Hverfis og Hressó.


Það sem var mjög skemmtilegt að ég hitti vinkonu mína sem ég hafði ekki séð í ein tvö ár hana Auði og líka hitti ég ferðafélaga minn hana Guðrúnu og vinkonu hennar sem ég man ekki hvað heitir. Sorry. Þetta gerðist á Apótekinu og þá var djammið rétt að byrja. Ég, Guðrún og vinkona hennar (köllum hana bara Hildi) djömmuðum af okkur rassgatið þessa nótt. Eftir að hafa eitt smá tíma á Apótekinu fórum við yfir á Hverfis. Þar hitti ég hana Tinnu mína, Ingu og Binný og dönsuðum við með þeim þar til að ljósin voru allt í einu kveikt. Bara búið að loka Hverfis, en það stoppaði mig ekki, heldur fórum við Guðrún og Hildur á Hressó og tókum einn snúning. Eftir það fórum við, fengum okkur snæðing og þaðan í leigubíl. Það næsta sem ég man eftir að ég vakna í leigubíl fyrir utan heima hjá mér, klukkan var ca 06:30.


Þú þarft ekki að vera gáfnaljós til þess að vita að ég var þunnur (vægast sagt) daginn eftir. Ég var ónýtur allan daginn.


Svo á laugardagskvöldinu var smá vina hittingur heima hjá Hrafni. Takk fyrir seinast félagi.


Sunnudagurinn var sko minn dagur. Óskarinn var í sjónvarpinu og auðvitað horfði ég á hann í beinu msn sambandi við hana Tinnu mína. Reyndar fór myndin af sjónvarpinu og ég var bara með hljóðið fyrstu tvo tímana en ég var með mynd og hljóð seinni tvo. Ég var mjög sáttur með það hvernig öll verðlaunin voru úthlutuð.


Jæja lesandi góður. Þú hefur eflaust verið að bíða eftir því hvenær þessi færsla myndi taka enda. Jæja, þú getur tekið gleði þína á ný. Ég er búinn.


Þangað til næst.


Bæ.

Brynjólfur Guðmundsson
5 athugasemdir

Frábær vika að baki og enn betri tekin við

18. febrúar 2008 klukkan 23:10

Vá hvað seinasta vika var algjör snilld. Maður er farinn að finna árangur í ræktinni og hef ekki svindlað einu sinni í matarræðinu. Kallinn er bara farinn að þyngja lóðin og auka level-ið á hlaupabrettinu.

 

En það er ekki það eina. Vegna mikilla anna í skólanum upp á síðkastið var ákveðið að halda smá bekkjarpartý til að væta kverkarnar. Partýið var haldið heima hjá Arnóri síðast liðið föstudagskvöld. Það var ótrúlega góð mæting og stemmningin góð. Ekki einungis mættu okkar bekkjarfélagar, heldur fengum við gesti úr öðrum bekkjum og líka nágranna Arnórs. Bara snilld.

 

Eftir gott djamm heima hjá Arnóri lá leiðin niður í 101 Reykjavík. Það sem var alveg frábært var að engin þurfti að taka taxa niður í bæ, heldur var Solla edrú og á sparibílnum sínum þannig hún gat tekið nokkra með sér í bíl. Svo var Maríanna svo sæt í sér að koma og sækja nokkra pissfulla karlmenn og skutla þeim downtown(takk fyrir það). Tobbi kallinn var einnig edrú aldrei þessu vant (it´s true) og keyrði hann restina af pakkinu (mér og Arnóri) á djammið. Flestir úr partýinu hittust á Hverfis og tjúttuðu þar fram eftir öllu.

 

Svo kom elskan mín þegar líða tók á kvöldið og keyrði kallinn sinn heim. Hún er svo góð við mig þessi elska.

 

Laugardagurinn var í rólegri kantinum, bara lært aðeins yfir daginn. Seinna um kvöldið fórum við svo Heiða til Fanný og JK Fús að horfa á Hostel 1 og 2. Þær eru alveg ágætar, samt engar Óskarsverðlauna myndir.

 

Á sunnudagskvöldið kíkti ég í bíó á Jumper. Myndin var ekkert sérstök og ekki hjálpaði til að bíó-ið var fullt af einhverjum gelgjum sem samkjöftuðu nánast alla myndina. Helvítis krakka vitleysingar.

 

Annars er ekki mikið meira að frétta en endilega kíkið á matardagbókina og ekki gleyma að kommenta.

 

Takk fyrir sælar...

Brynjólfur Guðmundsson
9 athugasemdir

Önnur vikan liðin og sú þriðja tekin við.

11. febrúar 2008 klukkan 15:20

Vika tvö gekk vel fyrir sig. Ekkert svindl og missti ekki úr ræktinni. Það eina sem var aðeins að klikka var matarræðið. Ekki það að ég hafi verið að borða óhollt, heldur var ég ekki nógu duglegur að borða. Sleppti stundum úr.

Annars var seinasta vika bara fín, fyrir utan þetta ógeðslega veður sem ætlar aldrei að taka enda. Why God why!!!

En þegar öllum snjónum kyngdi niður aðfaranótt fimmtudags og á fimmtudeginum sjálfum fórum við Heiða mín á smá rúnt og hjálpuðum þeim sem voru fastir (gott að vera á jeppa). Það var bara gaman.

Svo á föstudeginum var ekkert gert, allavega ekki um kvöldið. Ég er pínu svekktur að hafa misst af grímuballinu en ég kenni veðrinu algjörlega um það. En ég heimsótti kvikmyndahúsin á laugadagskvöldið og þeir sem þekkja Binna vita alveg hvað ég fór að sjá. Það er rétt, kallinn skellti sér á Rambo. Það er alveg sama hvað Stallone gerir, það er bara kúl. Myndin var hinn fínasti hasar og menn voru myrtir hægri vinstri, just the way we like it.

Annars er nú ekkert að frétta, lífið gengur bara sinn gang og allir ferskir. Tjékkið á matarræðinu fyrir seinustu viku og endilega, komið skoðun ykkar á framfæri með þvi að kommenta.

P.s. Það er komin ný könnun. Taktu þátt.

Brynjólfur Guðmundsson
12 athugasemdir

Frábær tengdamamma sem framleiddi ástina í lífi mínu

04. febrúar 2008 klukkan 23:58

Allavega, fyrsta vikan liðin og ég stóð mig bara þokkalega þakka þér fyrir. Þótt að ég hafi hlakkað til að byrja átakið kveið mér samt soldið fyrir að hætta í gosinu og namminu á virkum dögum en það var eins auðvelt og að drekka vatn. Þótt margir hafa veifað súkkulaði stykkjunum sínum framan í mig og verið rosalega nálægt mér þegar þeir fengu sér gos að þá hafði það engin áhrif á mig.

 

Ég verð að játa að það var rosalega gaman að mæta aftur í ræktina til að siða lóðin aðeins til. Steini mágur hefur verið að mæta með mér sem hefur bara verið snilld enda höfum við verið að peppa hvorn annan upp. Það er bara brillíjant að pumpa aðeins og fara svo í gufuna. Mæli með þessu.

 

Svo er kallinn bara orðinn bankastarfsmaður hjá Glitni. Fínt að getað unnið smá með skólanum og fengið smá aur fyrir taxanum heim eftir vísindaferðinar og þynnkumatnum daginn eftir.

 

Svo minni ég bara enn og aftur á að skoða hliðardálkana, sjá hvernig ég er að gera hlutina.

 

Munið svo bara tvennt, brosið út í heiminn og grátið í koddann ykkar.

Brynjólfur Guðmundsson
17 athugasemdir